Halló halló !
Núna er ég komin heim eftir franskadaga á Fáskrúðsfirði.
Það var svaka fjör og gaman að hitta alla vini sína og
fjölskyldu
Þetta var frekar sutt stopp, kom um 17:00 á
föstudeginum, því ég og Jói ákváðum að skella okkur í sund á
Akureyri. Á Akureyri var 25 stiga hiti og ég hélt að Jói myndi
kafna úr hita..Eftir sundið fengum við okkur að borða eftir það var
ferðinni heitið austur
Þegar heim var komið dreif ég mig í
betri föt og fékk mér öllara
og fór á brekkusönginn þar sem
dalasystur sungu ásamt söngvaranum í Súellen
Jói var því
miður að vera heima því hann var orðin veikur
ekki skemmtileg
byrjun á frönskum dögum. Ég hitti Tinnu, Guðbjörgu, Ásdísi,
Björgu, Katrínu og Unu
eftir brekkusönginn og varðeldinn var
ferðinni heitið í Partý til Ásdísar. Það var rosa gaman að
koma til hennar, þar hitt ég fleira fólk sem ég hafði ekki sé í
mörg mörg ár. Eftir partý röltum við öll saman á barinn þar
sem trúbador var að spila. Ég stoppaði ekki lengi enda var ég
þreytt eftir langa keyrslu.
Laugardaginn þá skeltum við okkur á fótboltaleik. Þar voru
Leiknir Fáskrúðsfirði að keppa á móti Reynir/Dalvík. Sá
leikur endaði 1 - 1. Eftir það var fór ég heim og hjálpaði
til í eldhúsinu af því að mamma var að kokkast á sumarlínu fyrir
frakkana
það lukkaðist víst rosa vel enda er mamma snildar
kokkur
Mamma kom svo heim og kláraði að elda. Bróðir mömmu
var í mat ásamt konu sinni og komu þau með þennan dýrindis humar
sem mágkona mömmu eldaði sjálf
Hef ekki smakkað svona í
mörg ár..Þetta var besti forrétur sem ég hef fengið á árinu
ummmmm verð svöng að hugsa um hann hehe. Um kvoldið ætlaði ég að
skella mér á ball en Jói var slappur og ég var líka frekar slöpp
þannig ég endaði bara heima að spjalla við liðið sem var í
heimsókn.
Á sunnudegingum var úrhellir hef sjaldan séð annað eins, og var
öll dagskrá flutt inn. Ég gerði voða litið þennan dag nema
slappa af..kíkti reyndar á ömmu á elló, hún var rosahress og alltaf
gaman að sjá hana. Sakna þess að geta ekki farið til hennar á
hverjum degi eins og ég var vön að gera.
En núna er ég komin heim til mín og er "litla"
frænka mín í heimsókn og ætlar að vera fram á
föstudag. Jói er í sveitinni og kemur í vikunni. Annars
varð það ekki fleira í bili, vonandi hafi þið átt góða helgi
eins og ég
Kveð að sinni.....
Aldís í dundrandi stuði
VERIÐ DUGLEG AÐ COMMENTA og SKRIFA Í GESTÓ